245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

7.2.2010 12:00:25
Leynigestur mætti á æfingadaga hjá TónSuð

Farsælt samstarf tónlistarskólanna á Suðurnesjum hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum, stjórnendur hittast reglulega og leggja á ráðin með uppákomur af ýmsu tagi bæði fyrir nemendur og kennara, má þar nefna t.d. námskeið, æfingabúðir, tónleika o.fl. Framundan er sameiginlegt námskeið um lesblindu sem ætlað öllum kennurum tónlistarskólanna.

Laugardaginn 30. janúar sl. var sameiginlegur æfingardagur allra gítarnemenda á svæðinu, svo kallað GítarSuð. Um 60 gítarnemendur, þar af 16 frá Tónlistarskóla Sandgerðis fjölmenntu snemma morguns á Ásbrú/Vallarheiði, nemendum var skipt í hópa eftir getu hvers og eins og stóðu æfingar yfir fram eftir degi.

Leynigestur mætti á svæðið, enginn annar en Ingó Veðurguð, pizzur voru snæddar í hádegihléi og handbolti beint í æð. Dagurinn endaði með tónleikum sem voru vel sóttir af gestum frá Suðurnesjum. Nemendur voru sælir og ánægðir með afrakstur dagsins sem segir meira en mörg orð.

Meðfylgjandi eru myndir frá æfingadeginum.


Myndir: Lilja Hafsteinsdóttir | lifid@245.is

 



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka